Hæ og hó. Haldið ekki að stelpan hafi komið líka svona rosa vel undan helginni. Svei mér þá ef þetta hefur ekki bara verið gaaaargandi snilldarhelgi.
Við úr hálendisdeild 4x4 skelltum okkur Sprengisandinn norður á föstudaginn. Lögðum í hann klukkan 1300 en vorum komin á Akureyri um 2200. Gekk bara nokkuð vel framan af þangað til össi og maggi þurftu að skrúfa dekkið undan pattanum mínum. Þar var eitthvað lagað og kom þá í ljós að það var bara lokubras á draslinu mínu. Við vorum með aðrar lokur með okkur en þeir bara nenntu ekki að skipta fyrr en á Akureyri daginn eftir. Enda þetta gekk allt líka bara glimrandi...eeeehhh hagggii ??? ha ha ha...
Maggi minn átti afmæli á laugardaginn 3. nóv. Til hamingju essskan mín.
Fórum á Greifann á Akureyri á laugardaginn, þar var maður sem sat fyrir aftan mig. Hann sagði eða mér heyrðist hann segja ....jiii sjáðu hún er alveg eins og reitt hæna um hausinn... ég leit með þvílíka skelkunarsvipnum á magga minn og svo össa og var eiginlega farin að fölna í framan. Strákar !!! heyrðuð þið hvað hann sagði um mig ??? Ha??? hvað spurðu þeir ??? Hann sagði að ég væri eins og reitt hæna um hausinn. Heyrðuð þið þetta ekki ? Þá tóku þeir brosandi undir með honum jáá´það jú jú þú ert bara alveg eins og reitt hæna um hausinn. Reyndar var það alveg rétt hjá þeim. Frekar ill greidd(sofnaði með blautt hárið
. Allan tímann á meðan ég var að borða 5 stjörnu ostaveisluna mína þá hugsaði ég um landnámshænurnar sem íslendingar rækta og hversu reittar þær eru oft. .... Þegar við komum út í bíl varð ég aðeins að tala meira um þetta því jú ég bara átti ekki til orð yfir dónaskapnum hjá manninum á næsta borði í minn garð. Þá sagði ég... helvítið karlinn og hvað kemur honum við þótt ég sé eins og reitt LANDHELGISHÆNA ??? Strákarnir sprungu úr hlátri og sögðu já ...Landhelgishænan þín(ég meinti landnámshæna). Þeim fanst þetta nú ekkert lítið fyndið og útskýrðu svo fyrir mér að karlinn hafi ekkert verið að tala um mig, heldur við son sinn sem sat á móti honum. Sonur hans var með húfu á hausnum og var alveg eins og landhelgishæna þegar hann tók húfuna af sér...svona er maður nú oft misskilinn.
Kvöldið fór vel fram. Allir MJÖG hressir og er ég sannfærð um að borðið okkar hafi verið hressasta borðið á árshátíðinni, enda við alveg með eindæmis skemmtilegum borðfélögum. Gísla, Tedda, Óskari Abba,Guðrúnu, Kára og einhverjum alveg sem féllu í skuggann :-) Bara gaman og við vorum sko ekkert að skafa utan af því að við værum i hálendisdeild klúbbsins. Trölluðum og tjúttuðum fram eftir öllum morgni gestamóttökunni til lítillar ánægju ha ha ha.... kannski þessvegna sem þeir rukkuðu magga tvöfalt hi hi hi... Við erum að tala um að ég ætla að tilnefna össa stjörnu árhátíðarinna því hann hélt stuðinu uppi á milli pása hjá hljómsveitinni og fór bara með gítarinn upp á borð og spilaði yfir hópinn. Fólki til mjög mikillar ánægju. Bara flott hjá þér Össi minn.
Sunndaginn vildi ég alveg endilega fara Kjöl, en vegna óvenju slæms ástands á ferðafélögunum varð ég bara að sætta mig við þjóðveg 1 suður.
Jæja gott í bili. Hlakka til að hitta alla aftur
kveðja Landhelgishænan.